Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Leit

Hætz !!

03. desember 2009 klukkan 00:34

Góðan og blessaðan :)

Mundi allt í einu eftir þessari síðu,,,,   gaman að eiga blogg og blogga svona einu sinni á ári :)

Efst í fréttum :

ÉG ER AÐ VERÐA MAMMA :)  & BJARTUR AÐ VERÐA PABBI :)

Jebb, undur og stórmerki gerast enn ,,, svo ég er búin að vera með lítið spons í mallanum síðan í lok febrúar væntanlega

Kúlan orðin alveg risastór enda átti krílið að vera komið í heiminn, var sett þann 1. dez , sem þýðir 2 dögum of sein,,, eða þannig,, þú veist :) 

Sunneva

æi ég varð mér finnst þetta æðislegt :)

25. desember 2008 klukkan 16:57
Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, mæli ég með að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega....

1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.

2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.

3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé:
Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"

5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox"

6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót

7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.

8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.

9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.

10. Ekki nota punkta.

11. Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga

12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.

13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé "taka með".

14. Syngdu með í óperunni

15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.

16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.

17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.

18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock Hard.

19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"

Laugardagur til laugardags

13. desember 2008 klukkan 23:41
Já sæll, eigum við að ræða það eitthvað ? Guggur upp um alla veggi :)

Já, þakklætið heldur áfram, vinnan mín, kærastinn minn, fjölskyldan mín, bíllinn minn, hele klabbet :)

Mikið að gerast hjá manni, ég var að komast inn í Bifröst :)  Er að fara í Diplómanán í Verslunarstjórn, 2 ára fjarnám, vúhú vúhú  jibbí og gaman

Búin að bíða eftir að komast í þetta nám í meira en ár. Allt strandaði á námssamning frá vinnunni minni. Vínbúðin gerði semsagt við mig samning og skaffar mér bakhjarl sem er nauðsynlegur við þetta nám.

Byrja núna 15 janúar að mig minnir. Á eftir að fá pósta um allar nánari upplýsingar :)   Bara spennandi og krefjandi tímar

Kallinn búinn að sækja um á Laugarvatni, ekki búinn að fá svar ennþá, en það fer að koma :)     Mikil menntun framundan hjá gleðipúkunum í Kópavoginum

Æi, ekkert meir í bili, er með ritstíflu
Sunneva

Takk !!

27. október 2008 klukkan 21:07
Ég var að henda þvotti inn í skáp,, sem er ekki frásögum færandi, nema það að ég var að hugsa ( aldrei þessu vant ) og fann fyrir svo miklu þakklæti. Mikið þakklæti yfir að eiga föt, þvottavél til að þvo þau og skáp til að geyma í, í herbergi sem er í íbúð sem við eigum, til að geyma okkur í :) og skrokk til að bera þau á. Þetta er æði :)

Helgin nýliðin var ein sú rólegasta sem sögur fara af ...

Vorum í Breiðholtinu mest alla helgina og sofnuð fyrir miðnætti bæði kvöldin, haha

Var í helgarfríi, og tók laugardaginn léttan, smá æfingu, smá heimsóknir og svo var dagurinn að mestu búinn,,, en mikið svakalega var ég glöð á sunnudeginum að hafa ekkert gert af mér :) Frekar næs að vera fullkomlega heilsuhraustur á sunnudegi, fyrir utan koffinskortshausverkinn sem botnaði svo SUNNUdaginn minn,, en jú ; kaffi og Treo björguðu því ;)

Er að horfa á með öðru auganu, alveg geggjaðan dýralífsþátt á Rúv. Þetta er alveg svakalegur þáttur :)

Yfir og út, farin í beddann, verð að losa smá orku í ræktina í fyrramálið ...

Já, kannski maður taki sér nokkra vetrarfrí-sdaga, svona til að vera með í tískubylgjunni sem gengur yfir ..  mála heima, sofa út, ,, hljómar ekki illa ??

Sunneva

Hetjan , eða þannig, eða jú ?

14. október 2008 klukkan 19:48
Smá klikk í hovedet, reyndi aftur við þetta að vakna kl 05 í morgun. Og það tókst, nett grumpy samt en ákvað að láta mig hafa það

Mætti galvösk í H10, kl 06 :)     Alveg svakalega tæknileg tækin þarna, sjónvarp á hverju upphitunartæki .   Verður gaman að prófa nýtt og læra meira

Æi, já en ég ætla ekkert að vera í alvöru hetjuleik, ég hélt ég myndi andast úr þreytu í vinnunni svo í dag eftir hádegið,,,, er kannski ekki svo mikill morgunhani....

En maður gefst ekki upp !!   :)      

Vorum að koma heim við hjúin, úr hvítlaukslambalæri hjá tengdó :)   NAMMI NAMM

En já smá pæling ... mikið svakalega er gott að ekki fylgjast með fréttum, bara horfa til himins og brosa :)

Já og ég er að fara í Vínskólann í Nóvember :)  semsagt númer 2 :)             það var í fréttum í dag
Sunneva

SUNNUdagur

12. október 2008 klukkan 19:52
Enn ein helgin búin, allt of snemma

Var að vinna í gær , svo smá tan í tilefni dagsins :)               Svo var ég sótt og brunað inn í Hafnarfjörð. Þar var að safnast saman ca 30 manns til að vera með surprise veislu í tilefni afmælisins hans Dóra sem er þrítugur í dag :*    Til hamingju Dóri :*   Þar var bolla og læti og vorum þar í húllumhæi til ca hálf fimm. Þá taxinn heim :)

Vinnuvikan var asskoti góð, hætti bara að horfa á fréttir og fylgdist því bara meira með veðrinu :)   Miklu skemmtilegra :) og mun fallegara   

Alltaf að sjá betur og betur hvað við eigum svakalega fallegt land og æðislegan himinn og ský :)     Always look on the bright side of life.....
Sunneva

Sunneva alltof snemma

08. október 2008 klukkan 06:20
Öss, ÉG er búin að vera að bíða eftir að ræktin opni,,,,   vinna kl 8  en ræktin opnar ekki fyrr en kl 6:30 , svindl,   

Sunneva

Sunneva seina

06. október 2008 klukkan 22:21
Það ætlar eitthvað illa að ganga að koma ferðasögunni hingað inn...

en ég skaaaal gefa mér tíma til þess bráðlega,,,  alveg að koma

En helgin er nú ný afstaðin og hún var skrambi pökkuð...

Löng vinnuvika að baki og hún var bara ágæt :)        bjóst við geggjað rólegum laugardegi í vinnunni, en það var bara helv,,, hellingur að gera, sem var alveg frábært því dagurinn kláraðist einn , tveir og bingó :)

þaðan fór ég beint í styrktarkvöldverð hjá Samhjálp í boði foreldra minna, svokallað kótilettukvöld :) NAMMI NAMM, takk mamma og pabbi :*

Þar tróð upp hann Pétur töframaður, mikið svakalega var drengurinn fyndinn !! Hann var alveg stórkostlegur :)   getið rétt ímyndað ykkur hvernig það er að grenja úr hlátri þegar maður er nýbúinn að stúta heilum disk af FEITUM og æðislega djúsi kótilettum með böns af meðlæti....

Árni Johnsen var svo heiðursgestur, og ótrúlegt en satt ég hló líka að honum, ekki eins mikið og af töframanninum, en samt þó

Svo spilaði Herbert Guðmundsson og talaði smá líka, og endaði svo á : Can´t walk away ..   alveg fjör :)

Jæja, verð að henda mér í rúmið

Já og by the way, GEGGJAÐ veður í dag, Svona er Ísland í dag

vuhuuuuu

26. september 2008 klukkan 18:43
Hallo hallo

Er i Romaborg i augnablikinu.... alveg geggjad,, fann loksins internet her a hotelinu og komst i heimabankann minn tvi kortin min voru ad strida mer....   en tad er buid ad laga tad svo nuna get eg etid sidustu kvoldmaltidina med lidinu...    

vid verdum sott kl 06:30 i nott og ta flogid til Amsterdam og aaetlud lending a klakann um kl 15

Gaman ad fa komment her a siduna :)   takk elskur

eg set inn svo heljarinnar ferdasogu tegar eg kem heim,   ummmm   kannski a sunnudaginn

morgundagurinn er vist fullskipadur,  fara heim og svo er onnur sidasta kvoldmaltidin med pabba sem er ad fara heim til norge a sunnudag

og buin ad taka 600 myndir.....

knus a alla
ja og her er heitt :)
Sunneva

Amsterdam

22. september 2008 klukkan 12:18
Heil og sael

Stelpan er bara uti i Amsterdam,    erum millilent her i 4 klst.      Vard ar rjuka a Burger King, helt ad tad veari svo gott,,,   en tad er best i minningunni,,,  best ad halda bara i tad....  

Tad var ad heyrast i Baendaferdum adan, teir  heyrdu i Italska flugfelaginu i morgun, og tad er eitthvad ekki alveg ljost med flugid okkar afram til Romar....

Spenno , spenno

Jaeja, timinn buinn


Meira sidar                                     ja og shit hvad tessi flugv0llur er stOr !!!!
Sunneva